Verkefnið ”Norðurlöndin í bíó”
Forsaga
Árið 2005 var gefin út skýrslan „Norrænn málskilningur” sem sýnir að skilningur ungs fólks á Norðurlöndunum á tungum grannþjóðanna fer sífellt versnandi. Skýrslan byggir á rannsókn sem var framkvæmd að frumkvæði Norræna menningarsjóðsins. Í rannsókninni kemur fram að helmingur aðspurðra menntaskólanema í úrtaki frá öllum Norðurlöndunum hafði hvorki í grunnskóla né framhaldsskóla fengið kennslu í norrænum tungumálum.
Haustið 2004 var verkefnið „Norðurlöndin í bíó” framkvæmt á Suður-Jótlandi með góðum árangri. Um það bil 1000 nemendur og kennarar þeirra tóku þátt og sáu norrænar kvikmyndir sem fjölluðu að einhverju leyti um kynþáttafordóma..
Markmið
Norðurlöndin leggja mismikla áherslu á kennslu í tungumálum frændþjóðanna. Norrænu félögin og Norrænu upplýsingaskrifstofunnar munu nú í sameiningu hleypa verkefninu „Norðurlöndin í bíó” af stokkunum á öllum Norðurlöndunum.
Markmið verkefnisins er að efla kunnáttu nemenda í tungumálum Norðurlanda með hjálp nýlegra og áhugaverðra stuttmynda. Verkefnið eykur einnig áhuga nemenda á norrænum kvikmyndum, norrænni menningu, sögu og samfélagi.
Framkvæmd verkefnisins árið 2006/2007
Verkefnið var kynnt um vorið 2006. Skólaárið 2006-2007 horfa nemendur á kvikmyndirnar og vinna tungumálaverkefni. Nemendurnir sjá fimm norrænar stuttmyndir: Á heimavelli (Noregur 2004); Perkele (Finnland 2004); Natan (Svíþjóð 2003); Móðan (Ísland 2004); Fiskur (Danmörk 2005). Þungamiðja verkefnisins eru tungumál Norðurlandanna og þema ársins er HÚMOR. Þemað er einnig grundvöllur fyrir umræður um mismun á kímni og húmor Norðurlandabúa.
Stefnt er á að 1000 skólabekkir á öllum Norðurlöndum taki þátt, frá 9. bekk grunnskóla til síðasta bekkjar framhaldsskóla, þ.e. að 20 – 30.000 14 – 19 ára nemendur muni hafa gagn og gaman af þessu verkefni og þar með auka kunnáttu sína í norrænum tungum. Einnig er stefnt að því að verkefnið verði í boði árlega og að þátttakendum fjölgi.
Kennsluefnið
Kennsluefnið samanstendur af kvikmyndum á DVD diski, hugmyndabæklingi og kennsluhefti á fimm tungumálum. Á DVD disknum eru fimm vandaðar norrænar stuttmyndir. Hægt er að velja mismunandi textaþýðingar með myndunum og einnig er hægt að sleppa því að birta texta. Kennsluheftið inniheldur verkefni og kennsluleiðbeiningar um efnið, um norrænar kvikmyndir, tungumálin, kímni, sögu Norðurlanda o.fl. Kennsluheftið er vistað á pdf-sniði á vefsíðu verkefnisins á slóðinni www.nordenibio.org. Kennsluefninu fylgir mappa til að geyma DVD diskinn, kennsluheftið og annað efni sem tilheyrir verkefninu.
Fjármögnun
Verkefnið er fjármagnað að stærstum hluta með framlögum úr sjóðum, þ.á.m. Norræna menningarsjóðnum, en einnig með framlögum frá Norrænu félögunum og Norrænu upplýsingaskrifstofunum. Til viðbótar hefur verkefnið notið stuðnings frá ýmsum sendiráðum Norðurlandanna.
Árangursmat
Óháður aðili metur framkvæmd og árangur verkefnisins svo fram komi hvaða áhrif verkefnið hefur á kunnáttu nemenda í norrænum tungumálum.





