Choose lang
  • Denmark
  • Norway
  • Finland
  • Iceland
  • Sweden
  • Great Britain

Kennsluheftið

Undervisningskompendium

Höfundur og ritstjóri:

  • Jan Olav Bruvik, Upplýsingastjóri hjá norska kennarasambandinu.

Textahöfundar:

  • Birgitta Lindgren, málfræðingur og norrænn fulltrúi í sænsku málnefndinni.
  • Lis Madsen, lektor, lektor frá Danmörku (höfundur skýrslunnar „Udredning vedrørende sprogforståelsen i Norden”).
  • Torbjørg Breivik, hjá norsku málnefndinni.
  • Jens Cramer, fyrrum lektor við Norrænu stofnunina í Árósum.
  • Eva Westergren, kvikmyndafræðingur hjá FilmCentrum í Stokkhólmi.
  • Saara Haapamäki, frá Åbo Akademi

Efnið er samið sérstaklega fyrir kennara á öllum Norðurlöndunum sem kenna dönsku/norsku/sænsku. Kennarar sem kenna önnur fög geta einnig nýtt sér efnið í þverfaglegri kennslu.


Vonast er til að efnið verði til þess að breyta þróun síðustu ára, því ekki hefur verið lögð mikil áhersla á þekkingu á Norðurlandamálunum. Þetta hefur haft í för með sér að ungt fólk á Norðurlöndunum hefur í auknum mæli notað ensku sem samskiptamál. Með markvissu átaki er hægt að snúa þessari þróun við, ekki aðeins í norrænum samskiptum, heldur er einnig hægt að auka skilning ungmenna á eigin tungumáli (Hægt er að lesa meira um þetta á heimasíðunni undir liðnum Málskilningur).

 

Kennsluefnið er byggt upp á eftirfarandi hátt:

  • Kynning á verkefninu
    Um málskilning á Norðurlöndunum og hvernig unnið er með Norðurlandamálin víðsvegar á Norðurlöndunum.
  • Norðurlöndin í bíó – til kennara:
    Hvernig nota má þetta efni í kennslunni.
  • Gagnkvæmur norrænn málskilningur
    Stutt umfjöllun um gagnkvæman málskilning á Norðurlöndunum.
  • Hafist handa með Norðurlöndin í bíó
    Dæmi um notkun í kennslu og verkefni fyrir nemendur.
  • Að vaxa úr grasi – grunnþema
    Hvernig grunnþemað birtist í stuttmyndunum.
  • Unnið með stuttmyndirnar
    Um frásögn og innihald stuttmyndanna og hvernig nota má efnið í kennslunni. Verkefni fyrir nemendur.
  • Norrænu tungumálin
    Nánari umfjöllun um norrænan málskilning. Eftir Birgitta Lindgren frá sænsku málnefndinni.
  • Hvað stendur í aðalnámskrám?
    Upplýsingar úr aðalnámskrám landanna um kennslu um Norðurlönd og tungumál Norðurlanda.
  • Hér er að finna nánari upplýsingar
    Tengingar á vefsíður um tungumál, Norðurlönd og gagnkvæman málskilning á Norðurlöndunum.
  • Norræna félagið
    Upplýsingar um Norræna félagið.
  • Fleiri verkefni
    Fleiri verkefni fyrir nemendur um Norðurlönd og tungumál Norðurlandanna.